Einstæðingur finnst látinn í íbúð sinni í Reykjavík. Á skrifborði hans liggja blaðaúrklippur frá stríðsárunum þar sem sagt er frá óhugnanlegu morði: stúlka fa...

Buy Now From Amazon

Product Review

Einstæðingur finnst látinn í íbúð sinni í Reykjavík. Á skrifborði hans liggja blaðaúrklippur frá stríðsárunum þar sem sagt er frá óhugnanlegu morði: stúlka fannst kyrkt bak við Þjóðleikhúsið sem var á þeim tíma birgðastöð fyrir herinn. Lögreglumaður kominn á eftirlaun fréttir af málinu og forvitni hans vaknar. Hann hefur áður heyrt um stúlkuna – en hvers vegna skyldi nokkur maður geyma fregnir af dauða hennar? Skuggasund er sautjánda bók Arnaldar Indriðasonar. Hér fetar hann ótroðnar slóðir í fylgd nýrra sögupersóna; annars vegar í samtímanum og hins vegar á árum síðari heimsstyrjaldar. Arnaldur hefur um langt skeið notið gríðarlegrar hylli lesenda og gagnrýnenda heima og erlendis. Bækur hans hafa verið þýddar á tugi tungumála, selst í milljónum eintaka og aflað höfundinum verðlauna og virðingar víða um lönd. Skuggasund hefur nú þegar hlotið virt alþjóðleg bókmenntaverðlaun: hin spænsku Premio RBA de Novela Negra 2013 sem veitt eru fyrir óútgefna glæpasögu og var sagan valin úr hátt í tvö hundruð handritum frá ýmsum löndum. Bókin kemur samtímis út á spænsku og íslensku.

Similar Products

Þýska húsið (Icelandic Edition)Petsamo (Icelandic Edition)Kamp Knox (Icelandic Edition)Sogið (Icelandic Edition)DNA (Icelandic Edition)Rof (Icelandic Edition)Dead Souls: A gripping serial killer thriller with a shocking twist (Detective Kim Stone Crime Thriller Series Book 6)